Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 39/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 10. janúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 39/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23120096

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 24. október 2023 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn einstaklings er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og brottvísa honum frá landinu. Var kæranda brottvísað og gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar, aðallega á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, en til vara á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga. Til þrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og máli hans verði vísað til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 2. apríl 2023 m.a. ásamt föðurbróður sínum og öðrum ólögráða frænda sínum. Föðurbróðir kæranda framvísaði fyrir hans hönd ferðaskilríkjum útgefnum af grískum stjórnvöldum með gildistíma til 15. mars 2026. Kærandi kom til viðtals hjá Barnahúsi 25. maí 2023, ásamt fulltrúa barnaverndar og löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 24. október 2023 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað brott frá landinu. Ákvörðunin var birt föðurbróður kæranda sama dag og barst kærunefnd greinargerð kæranda 7. nóvember 2023. Þá bárust upplýsingar frá félagsþjónustu Suðurnesjabæjar 21. nóvember, 8. og 11. desember 2023. Þá bárust upplýsingar frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum 19. desember 2023. Hinn 2. janúar 2024 bárust athugasemdir kæranda vegna fyrirspurna kærunefndar útlendingamála. Með vísan til neðangreindrar umfjöllunar hefur mál kæranda verið aðskilið frá málum föðurbróður og ólögráða frænda hans. Fjallað er um umsóknir þeirra í úrskurðum kærunefndar nr. 37/2024 og 38/2024.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í máli föðurbróður hans, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum hans væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja föðurbróður sínum til Grikklands. Var umsókn kæranda um alþjóðlega vernd af þeim sökum synjað um efnismeðferð með vísan til ákvæða 36. gr. laga um útlendinga og honum ákvarðað brottvísun og endurkomubann í samræmi við 3. mgr. 98. gr. sömu laga.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í sameiginlegri greinargerð kæranda og föðurbróður hans er vísað til greinargerðar til Útlendingastofnunar, viðtala og framhaldsviðtals hvað málavexti varða. Er þar gerð athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar hvað varðar aðgangshindranir að skatt- og almannatrygginganúmerum í Grikklandi. Kærandi mótmæli þeirri staðhæfingu að handhafar alþjóðlegrar verndar hafi sömu réttindi og ríkisborgarar Grikklands. Þau skilyrði sem yfirvöld í Grikklandi setji fyrir veitingu slíkra númera leiði til þess að hann muni ekki hafa sama aðgang að grunnþjónustu og grískir ríkisborgarar. Þá sé kærandi í viðkvæmri stöðu og á framfæri föðurbróður síns en hann muni hafa ríka þörf á félagslegum stuðningi og barnaverndarþjónustu. Vísað er til alþjóðlegrar skýrslu þar sem fram komi að handhafar alþjóðlegrar verndar mæti aðgangshindrunum að grunnþjónustu, heilbrigðisþjónustu, félagslegri þjónustu og öðrum stuðningi. Þá komi fram í skýrslunni að engin raunveruleg félags- eða fjárhagsaðstoð sé í boði fyrir flóttamenn í Grikklandi þar sem þeir séu útilokaður frá því að njóta réttinda til jafns við gríska ríkisborgara. Þá sé ekki ljóst hvernig forsjá yfir kæranda yrði hagað í Grikklandi eða hvers kyns félagsleg aðstoð sé í boði hjá grískum yfirvöldum. Kærandi muni þurfa á að halda félagslegri aðstoð og barnaverndarþjónustu eftir þær hrakningar sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki. Vísað er til úrskurðar kærunefndar nr. 69/2022, dags. 24. febrúar 2022 og með vísan til jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eigi sömu sjónarmið við í þessu máli. Þá sé ekki í samræmi við öryggi, velferð og þroska kæranda að verða sendur aftur til Grikklands, þar sem óvíst sé hvort föðurbróðir hans muni halda forsjá yfir honum og óvíst sé að hvaða leyti þeim muni bjóðast félagsþjónusta eða barnaverndarþjónusta.

Þá er í greinargerð kæranda gerð athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar hvað varðar aðgang að húsnæði í Grikklandi. Vísað er til heimilda um húsnæðismál flóttamanna í Grikklandi og með hliðsjón af því sé ljóst að endursending hans muni leiða til þess að hann þurfi að hafast við á götunni vegna langra biðlista eftir gistiskýlum og öðrum húsnæðiskosti. Kærandi vísar til meginreglu barnaréttar um að við ákvörðun skuli taka mið af hagsmunum barnsins og því sem barni sé fyrir bestu.

Kærandi fjallar þá um sjónarmið barnaréttar um að við ákvörðun séu hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Í viðtali við kæranda hafi hann greint frá því að vilja dvelja hér á landi en kærandi sé í umsjá barnaverndar á Íslandi og dvelji hjá fósturfjölskyldum um þessar mundir. Með endursendingu kæranda til Grikklands væri öryggi, velferð og félagslegum þroska hans stefnt í hættu sem gangi gegn meginreglunni um að ákvarðanir sem varði börn beri að taka með hliðsjón af því sem sé barni fyrir bestu, sbr. 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga og 3. gr. barnasáttmálans, sbr. lög nr. 19/2013, sbr. einnig 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu og vísar til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Kærandi vísar til þess að hann muni sæta aðgangshindrunum og mismunun við að tryggja framfærslu sína og önnur réttindi sem staðfest séu í þeim heimildum sem vísað hafi verið til.

Kærandi krefst þess til vara að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans til efnismeðferðar, sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að ekki sé heimilt að endursenda hann til Grikklands þar sem hann njóti verndar 42. gr. laga um útlendinga. Með hliðsjón af þeim efnahagslegu og félagslegu aðstæðum sem bíði kæranda og þeirri mismunun sem regluverk í Grikklandi feli í sér, verði að telja að endursending hans til Grikklands feli í sér hættu á að verða fyrir meðferð sem sé ósamrýmanleg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Til þrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til nýrrar meðferðar. Kærandi telur að heildstætt mat á einstaklingsbundnum aðstæðum hans í Grikklandi hafi ekki verið framkvæmt með fullnægjandi hætti og þá einkum í ljósi þeirrar sérstaklega viðkvæmu stöðu sem hann sé í. Í hinum kærðu ákvörðunum hafi Útlendingastofnun vísað til þess að forsjá yfir kæranda kunni að koma til álita og sérstaklega sé fjallað um forsjá hans í hinni kærðu ákvörðun. Þá kemur einnig fram í hinni kærðu ákvörðun að stofnunin hafi verið í samskiptum við grísk stjórnvöld vegna málsmeðferðar við öflun verndarhafa á skattnúmeri, kennitölu og heilbrigðisnúmeri sem hafi þarfnast nánari skýringa. Í ljósi þeirrar sérstaklega viðkvæmu stöðu sem kærandi sé í og þá einkum með hliðsjón af því að forsjá yfir kæranda sé ekki á hreinu, hvað þá í Grikklandi hefði Útlendingastofnun borið að rannsaka málið frekar og þá hvernig forsjá kæranda yrði háttað til frambúðar í Grikklandi. Vísar kærandi til 10. gr. stjórnsýslulaga, 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga sem og 2. mgr. 10. gr. barnalaga.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] ára drengur sem kom hingað til lands m.a. ásamt föðurbróður sínum og öðrum ólögráða frænda sínum. Föðurbróðir kæranda hefur lagt fram gögn frá heimaríki sem bera með sér að honum hafi verið falin tímabundin forsjá kæranda vegna ferðalags frá heimaríki til Grikklands. Kærandi og frændur hans hafi yfirgefið heimaríki 28. október 2022 og farið til Egyptalands. Þaðan hafi þeir haldið til Tyrklands og áfram til Grikklands þar sem þeir hafi lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd 15. nóvember 2022 og fengið hana veitta 9. desember 2022. Þeir hafi dvalið í Grikklandi þar til þeir lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi 2. apríl 2023. Föðurbróðir kæranda greindi frá því að hafa ekki haft aðgang að atvinnu, heilbrigðiskerfinu eða félagslegri aðstoð í Grikklandi en eftir að þeir hafi hlotið alþjóðlega vernd hafi þeir dvalið í herbergi velgjörðarmanns. Í viðtali hjá Barnahúsi greindi kærandi frá því að hafa ekki liðið vel í Grikklandi og að hann hafi orðið fyrir fordómum og munnlegu ofbeldi þar í landi. Kærandi kvaðst eiga í góðum samskiptum við föðurbróður sinn og að hann hefði forræði yfir sér. Samkvæmt gögnum málsins býr kærandi hjá fósturfjölskyldu hér á landi sem stendur. Ekki verður annað ráðið en að kærandi sé við góða líkamlega heilsu. Í málinu liggur fyrir vottorð frá barna- og unglingageðdeild Landspítala, dags. 8. desember 2023, […].

Réttarstaða kæranda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Í 12. tölul. 3. gr. laga um útlendinga er að finna skilgreiningu á hugtakinu Fylgdarlaust barn. Þar segir að barn sem komi fylgdarlaust inn á yfirráðasvæði ríkis, svo lengi sem það hafi ekki í reynd verið tekið í umsjá foreldra eða fullorðins einstaklings sem beri ábyrgð á því samkvæmt lögræðislögum teljist fylgdarlaust. Þetta eigi einnig við ef barnið er skilið eftir án fylgdar eftir að það kemur á yfirráðasvæði ríkis. Í 1. mgr. 51. gr. lögræðislaga nr. 71/1997 kemur fram að foreldrar barns sem sé ólögráða fyrir æsku sakir og þeir sem barni koma í foreldra stað ráði persónulegum högum þess. Nefnist þau lögráð forsjá og fari um hana samkvæmt ákvæðum barnalaga og lögum um vernd barna og ungmenna. Líkt og fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar geta foreldrar falið öðrum forsjá barns með samningi, sbr. 1. málsl. 5. mgr. 32. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þá kemur fram í 1. mgr. 90. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, að foreldrar hafi heimild til að fela öðrum daglega umönnun og uppeldi barns síns, enda brjóti það ekki í bága við hagsmuni barnsins. Í a-lið 1. mgr. 25. gr. barnaverndarlaga kemur fram að barnaverndarþjónusta geti með samþykki foreldra og barns sem hefur náð 15 ára aldri tekið við forsjá eða umsjá barns og ráðstafað barni í fóstur. Þá segir í 1. mgr. 33. gr. sömu laga að þegar barnaverndarþjónusta hefur tekið við umsjá eða forsjá barns skal hún gera skriflega áætlun um trygga umsjá barnsins. Í áætlun skuli tilgreina hvers konar vistun er fyrirhuguð og hversu lengi, markmið með vistun, stuðning við barnið o.fl. Þá kemur fram í a-lið 1. mgr. 65. gr. sömu laga að með fóstri sé átt við að barnaverndarþjónusta feli sérstökum fósturforeldrum umsjá barns í a.m.k. þrjá mánuði þegar fyrir liggi að foreldrar hafi afsalað sér forsjá eða umsjá og samþykkt fósturráðstöfun.

Í hinni kærðu ákvörðun í máli föðurbróður kæranda kemur fram að honum hafi verið falin forsjá yfir kæranda. Tekur Útlendingastofnun m.a. fram að þau gögn sem föðurbróðurinn lagði fram hafi sannað nægjanlega blóðtengsl þeirra auk þess sem þau staðfesti að bróðir föðurbróðurins sé faðir kæranda. Þá komi enn fremur fram að foreldrar kæranda hafi gefið föðurbróðurnum leyfi til þess að ferðast með kæranda til Grikklands en hvergi sé tekið fram að sá hafi heimild til að ferðast með kæranda annað en til Grikklands. Þó hafi föðurbróðir kæranda greint frá því að foreldrar kæranda hafi vitað að förinni væri heitið til Íslands að fenginni alþjóðlegri vernd og ferðaskilríkjum frá grískum yfirvöldum. Var það mat Útlendingastofnunar að foreldrar kæranda hafi veitt föðurbróður hans heimild til að ferðast með hann til Grikklands og falið honum tímabundna forsjá yfir honum. Af þeim sökum komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að kærandi teldist ekki fylgdarlaus í skilningi 12. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Var leyst úr umsókn kæranda, föðurbróður hans og ólögráða frænda hans, sem föðurbróðurinn hafði jafnframt forsjá yfir, sem einnar heildar.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 16. nóvember 2023, til barnaverndar Suðurnesjabæjar var óskað eftir upplýsingum um það hvers vegna kærandi hefði verið vistaður í fóstri á vegum barnaverndar auk þess sem óskað var eftir frekari upplýsingum um mál hans. Í svari félagsráðgjafa hjá félagsþjónustu Suðurnesjabæjar, dags. 21. nóvember 2023, kom fram að samkvæmt verklagi barnaverndar færi fram frummat á aðstæðum og líðan barns sem komi hingað til lands í fylgd fullorðins aðila sem ekki geti sýnt fram á forsjá, með tilliti til öryggis þess. Ef ekki sé talið öruggt að barn dvelji hjá viðkomandi, skuli barnaverndarþjónustan taka við umsjá barnsins og vista það samkvæmt barnaverndarlögum. Kærandi hafi verið vistaður á fósturheimili í kjölfar þess að hafa komið hingað til lands með föðurbróður sínum í samráði við lögreglu sem hafi verið með málið til skoðunar. Þegar ljóst hafi verið að lögregla hafi talið óhætt að kærandi væri sameinaður föðurbróður sínum, hafi kærandi verið byrjaður í skóla og aðlagast aðstæðum á fósturheimili sínu. Kærandi hafi óskað eftir að vera áfram á fósturheimili sínu en verið í reglulegum samskiptum við frændfólk sitt hér á landi, þ. á m. föðurbróður sinn. Barnavernd hafi verið í samskiptum við foreldra kæranda í heimaríki og hafi þeir óskað eftir því að kærandi yrði áfram í vistun á fósturheimili. Samkvæmt forsjáraðilum líði kæranda vel þar, sé byrjaður í skóla og í öruggum aðstæðum. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 7. desember 2023, var óskað eftir upplýsingum frá félagsþjónustu Suðurnesjabæjar um það hver færi með forsjá kæranda hér á landi. Í svari frá félagsþjónustu Suðurnesjabæjar, dags. 8. desember 2023, kemur fram að kærandi væri án forsjáraðila hér á landi og Barnaverndarþjónusta Suðurnesjabæjar líti svo á að foreldrar hans fari með forsjána. Við komu kæranda til landsins og eftir frummat hafi verið ákveðið að aðskilja kæranda frá föðurbróður sínum og litið svo á að forsjáraðilar hefðu falið föðurbróður kæranda umsjá hans samkvæmt 90. gr. barnaverndarlaga. Á meðan málið var til frekari könnunar hafi kærandi og föðurbróðir hans verið staðsettir í úrræði Vinnumálastofnunar sem var í umdæmi barnaverndarþjónustu Suðurnesjabæjar. Þegar málið hafi verið tilkynnt til lögreglu vegna gruns um mansal og eftir viðtal við kæranda í Barnahúsi hafi kærandi verið aðskilinn frá föðurbróður sínum og barnaverndarþjónusta tekið við umsjá hans sem væri í samræmi við leiðbeinandi verklag Barna- og fjölskyldustofu. Við komuna til landsins hafi föðurbróðir kæranda verið með gögn frá heimaríki og Grikklandi varðandi leyfi til að ferðast með og hafa umsjá með kæranda. Þegar barn fái dvalarleyfi hér á landi sé Barna- og fjölskyldustofu skylt samkvæmt 6. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga að taka ákvörðun um það hvaða þjónusta fari með forsjá barns. Það sé fyrst þá sem forsjáin sé því í höndum Barnaverndarþjónustunnar. Fram að þeim tíma séu fylgdarlaus börn án forsjáraðila á landinu. Með tölvubréfi kærunefndar sama dag óskaði kærunefnd eftir nánari skýringu á því hver færi með forsjá og umsjá kæranda. Í svari sem barst sama dag kemur fram að Barnaverndarþjónustan líti svo á að forsjáin liggi hjá foreldrunum, umsjáin hjá Barnaverndarþjónustunni en hún hafi verið um tíma hjá frændanum.

Síðar sama dag sendi kærunefnd tölvubréf og óskaði eftir nánari útskýringum frá barnaverndarþjónustu Suðurnesjabæjar á atvikum málsins. Í tölvubréfi dags. 21. nóvember 2023 hafi komið fram að kærandi hafi verið vistaður á fósturheimili í samráði við lögreglu, sem hafi verið með málið til skoðunar. Þegar ljóst hafi verið að lögreglan teldi óhætt að kærandi sameinaðist föðurbróður sínum hafði hann verið byrjaður að aðlagast aðstæðum sínum á fósturheimilinu. Í fyrsta tölvubréfinu frá barnaverndarþjónustunni 8. desember 2023 hafi komið fram að vegna gruns um mansal og eftir viðtal við kæranda í Barnahúsi hafi hann verið alskilinn frá frænda sínum. Taldi nefndin að framangreindum upplýsingum bæri ekki saman og var sú spurning lögð fram hvort barnaverndarþjónusta Suðurnesjabæjar mæti það sem svo að kæranda væri óhætt að vera í umsjá föðurbróður síns. Í svari kom fram að þegar í ljós hafi komið að lögreglan ætlaði ekki áfram með lögreglurannsókn hafi opnast á samskipti við föðurbróður kæranda. Við mat á stöðu kæranda, þar sem viðhorf hans var kannað auk þess sem breytt afstaða foreldra hans varðandi vistun hans lá fyrir, var sú ákvörðun tekin að umsjá kæranda yrði ekki færð aftur til föðurbróður hans. Var sú ákvörðun tekin eftir að staðfesting fékkst frá lögreglu að málið væri ekki til rannsóknar vegna gruns um mansal. Barnaverndarþjónusta legði ávallt mat á það hvernig hagsmunum barna sé best borgið. Eins og fram hafi komið þá hafi það verið mat Barnaverndarþjónustunnar að hagsmunum kæranda væri best borgið hjá fósturfjölskyldu sinni á þeim tímapunkti.

Hinn 15. desember 2023 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum vegna málsins. Í tölvubréfi frá embættinu, dags. 19. desember 2023, kemur m.a. fram að mál kæranda væri tengt máli annars einstaklings sem hafi einnig komið með tvo drengi frá heimaríki kæranda til landsins og mögulega væri um að ræða skipulagt smygl á fólki innan Evrópu en 11. apríl 2023 hafi lögreglu, barnateymi Útlendingastofnunar og Vinnumálastofnun borist erindi frá barnavernd Suðurnesjabæjar þar sem fram hafi komið að tveir hópar hefðu lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi á tveimur vikum, annars vegar kærandi og föðurbróðir hans ásamt ólögráða frænda kæranda og hins vegar tveir aðrir drengir sem hafi komið í fylgd með nafngreindum frænda sínum. Var það mat barnaverndar að skoða þyrfti málin dýpra en frásagnir og framlögð gögn væru eins, auk þess sem umsækjendurnir væru allir frá sama heimaríki. Þá kom þar jafnframt fram í svari lögreglustjórans á Suðurnesjum að ekki hafi farið fram formleg rannsókn hjá lögreglu vegna smygls á fólki. Engar upplýsingar hafi borist lögreglu um að kærandi væri þolandi mansals eða grunur væri um slíkt brot og engin merki um hagnýtingu hans, sbr. ákvæði 227. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Það hafi verið mat lögreglu að fyrst og fremst væri um að ræða flutning drengja til Íslands í því skyni að sækja um alþjóðlega vernd með það að leiðarljósi að sækja síðar um fjölskyldusameiningu fyrir fjölskyldu kæranda og frænda hans.

Meðfylgjandi umræddu svari embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar var afrit tölvubréfs, dags. 17. apríl 2023, frá Barnavernd Suðurnesjabæjar sem sent hafi verið til Lögreglustjórans á Suðurnesjum, barnateymis Útlendingastofnunar og Vinnumálastofnunar þar sem fram kemur að Barnaverndarþjónusta Suðurnesjabæjar hafi skoðað mál kæranda sem lögreglan væri með hjá sér í skoðun. Kærandi og frændi hans hafi virst þekkja þann aðila sem þeir hafi komið með til landsins og líði vel með honum. Þeir hafi einnig þekkst fyrir ferðina til Grikklands frá heimaríki. Ekki sé að sjá merki þess að kærandi sé hræddur eða neyddur í aðstæður og kærandi greint frá því að hafa búið með frænda sínum í heimaríki og eigi sömu ömmu og afa.

Af gögnum málsins má sjá að foreldrar kæranda fólu föðurbróður hans að bera ábyrgð á honum vegna ferða þeirra til Grikklands og síðan hingað til lands. Eins og að framan greinir gera ákvæði lögræðislaga, barnalaga og barnaverndarlaga ráð fyrir að foreldrar geti falið öðrum forsjá barna sinna og daglega umönnun og uppeldi þeirra. Í ljósi þessa telst kærandi hafa verið í fylgd einstaklings sem ber ábyrgð á honum í skilningi lögræðislaga og var hann því ekki fylgdarlaus í skilningi 12. tölul. 3. gr. laga um útlendinga þegar hann kom hingað til lands, sbr. einnig 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af gögnum málsins verður ráðið að kærandi hafi ekki verið metinn fylgdarlaus við komuna til landsins en samkvæmt framlögðum gögnum frá föðurbróður kæranda hafi honum verið falin heimild til að ferðast með kæranda til Grikklands. Þá bera framangreindar upplýsingar frá barnavernd Suðurnesjabæjar með sér að kærandi og föðurbróðir hans hafi, eftir komuna til landsins, verið vistaðir í sérstöku úrræði á vegum Vinnumálastofnunar fyrir fylgdarlaus börn og dvalið þar í um tvo mánuði. Kærandi hafi farið í viðtal í Barnahúsi 25. maí 2023 en samkvæmt sérfræðingi Barnahúss sem tók viðtalið við kæranda hafi engar vísbendingar verið uppi um kynferðislega áreitni eða ofbeldi af neinu tagi. Þá hafi kærandi jafnframt greint frá því að vera í góðu sambandi við föðurbróður sinn. Samkvæmt upplýsingum frá barnaverndaryfirvöldum hafi samt sem áður verið tekin ákvörðun um að setja kæranda í neyðarvistun en í mati á stöðu kæranda og við skýrslutöku í Barnahúsi hafi vaknað grunur um mansal. Með tölvubréfi 13. desember 2023 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá barnaverndarþjónustu Suðurnesjabæjar um á hvaða lagagrundvelli kærandi hafi verið vistaður í fóstri og hvers konar mat hafi farið fram áður en sú ákvörðun hafi verið tekin. Var jafnframt óskað eftir formlegum ákvörðunum, sem og öðrum viðeigandi gögnum, varðandi framangreint. Skrifleg ákvörðun barnaverndaryfirvalda um neyðarvistun kæranda þar sem nánari ástæður vistunarinnar eru útlistaðar og rökstuddar er ekki meðal gagna málsins. Samkvæmt upplýsingum frá félagsþjónustu Suðurnesjabæjar varði neyðarvistun í 6 daga. Fram kom í upplýsingum frá félagsþjónustu Suðurnesjabæjar til kærunefndar frá 14. desember 2023 að í hefðbundinni málsmeðferð í íslensku barnaumhverfi hefði foreldrum verið birt ákvörðun um neyðarvistun en að það hafi verið gert símleiðis þar sem foreldrar voru stödd í heimaríki og eðli málsins samkvæmt ekki hægt að gera það í eigin persónu. Í samskiptum við foreldra var rædd sú nauðsyn að kærandi yrði áfram vistaður á vegum íslenskra barnaverndaryfirvalda en jafnframt kom fram sú ósk foreldra að kærandi yrði sameinaður frænda sínum á ný. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að kæranda hafi verið skipaður sérstakur talsmaður skv. 3. mgr. 46. gr. barnaverndarlaga. Í framhaldi af neyðarvistun var kæranda komið fyrir hjá fósturfjölskyldu. Skrifleg ákvörðun barnaverndaryfirvalda um þá ráðstöfun er ekki meðal gagna málsins og þannig liggur ekki fyrir rökstuðningur fyrir áframhaldandi vistun, hvers vegna óskir foreldra kæranda um að hann yrði sameinaður frænda sínum á ný voru ekki teknar til greina eða hvort leitað hafi verið álits kæranda og honum veittur réttur til að tjá sig. Í framangreindum upplýsingum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum, sem bárust kærunefnd 19. desember 2023, kemur m.a. fram að hinn 25. maí 2023 hafi lögreglan fengið tölvubréf frá barnavernd Suðurnesjabæjar þar sem óskað var eftir upplýsingum um stöðu máls kæranda hjá lögreglu. Hinn 1. júní 2023 hafi lögreglan svarað á þá leið að embættið hafi heyrt í félagsráðgjafa hjá félagsþjónustu Suðurnesjabæjar og spurt til baka hvort málinu væri lokið í bili. Svar barst frá barnavernd Suðurnesjabæjar 6. júní 2023 um að málið væri afgreitt í bili. Var jafnframt spurt á móti hvort málið yrði rannsakað áfram hjá lögreglu. Ekki liggur fyrir hvort þeirri fyrirspurn hafi verið svarað en meðal gagna málsins er tölvubréf lögreglu, til félagsþjónustu Suðurnesjabæjar frá 12. júlí 2023, þar sem lögregla óskar eftir upplýsingum um stöðu máls kæranda og hvað hafi komið út úr viðtali kæranda hjá Barnahúsi. Í svarbréfi lögreglu til kærunefndar segir jafnframt að 14. júlí 2023 hafi umbeðnar upplýsingar um kæranda komið frá barnavernd. Þar komi m.a. fram að kærandi hafi haft í hyggju að fá fjölskyldu sína hingað til lands en neitað að hafa verið þvingaður í nokkuð eða gert hluti án hans vilja. Starfsmaður barnaverndar hafi þó ákveðið að neyðarvista kæranda í sex daga og þar hafi eitt og annað komið í ljós. Kærandi hafi beðið neyðarforeldri um 300 evrur til þess greiða fyrir flug sitt hingað til lands. Þegar þeirri ósk hafi verið hafnað og honum boðinn vasapeningur í staðinn hafi kærandi óskað eftir því að fá vasapeninginn greiddan í evrum. Í niðurlagi svarbréfs lögreglustjórans á Suðurnesjum kemur fram að engin formleg rannsókn hafi hafist hjá lögreglu vegna smygls á fólki. Engar upplýsingar hafa borist lögreglu um að kærandi væri þolandi mansals eða að grunur væru um slíkt brot auk þess sem engin merki væri um hagnýtingu hans, sbr. ákvæði 227. gr. a almennra hegningarlaga. Virðist fyrst og fremst hafa verið um að ræða flutning kæranda til Íslands í því skyni að sækja um alþjóðlega vernd með það að leiðarljósi að sækja síðar um fjölskyldusameiningu fyrir fjölskyldur þeirra.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda er byggt á því að hann sé ekki fylgdarlaus og að föðurbróðir hans fari með forsjá hans með vísan til framlagðra skjala þar um, annars vegar frá heimaríki og hins vegar frá grískum stjórnvöldum. Hvergi kemur fram í ákvörðun Útlendingastofnunar að grunur sé um mansal eða smygl. Útlendingastofnun hlutaðist hvorki til um að afla staðfestrar þýðingar á forsjárpappírum frá heimaríki né frá grískum stjórnvöldum. Kærunefnd gerir athugasemd við þá framkvæmd Útlendingastofnunar og telur að ríkir hagsmunir hafi staðið til þess að láta þýða framangreinda forsjárpappíra, m.a. í ljósi þess að uppi hafi verið vangaveltur frá barnavernd Suðurnesjabæjar um að málið tengdist upplýsingum um skipulagt smygl á fólki innan Evrópu.

Líkt og að framan greinir var kærandi ekki fylgdarlaust barn í skilningi 12. tölul. 3. gr. laga um útlendinga við komuna til landsins enda í fylgd með föðurbróður sínum. Þá liggur fyrir að kærandi hafi verið vistaður með föðurbróður sínum í úrræði Vinnumálastofnunar allt þar til hann hafi farið í viðtal hjá Barnahúsi 25. maí 2023, eða tæplega tvo mánuði. Þær upplýsingar sem kærunefnd hefur aflað frá hlutaðeigandi stjórnvöldum ber ekki saman um ástæður þess að kærandi hafi verið neyðarvistaður í fóstri hér á landi í kjölfar viðtals hans hjá Barnahúsi. Kærunefnd fær ekki séð að þær upplýsingar sem fram hafa komið af hálfu barnaverndaryfirvalda við meðferð máls þessa hjá kærunefnd, nánar tiltekið að grunur um mansal hafi vaknað í mati á stöðu kæranda og við skýrslutöku í Barnahúsi, fái stoð í fyrirliggjandi gögnum málsins. Barnaverndarþjónusta Suðurnesjabæjar virðist ekki hafa séð ástæðu til að skipa kæranda sérstakan talsmann í samræmi við 3. mgr. 46. gr. barnaverndarlaga, þegar ákvörðun um ráðstöfun samkvæmt 25. gr. laganna var tekin. Afrit af skriflegri tilkynningu barnaverndaryfirvalda þar um til lögreglu í framhaldi af viðtali í Barnahúsi er ekki meðal gagna málsins. Þá hafi frásögn kæranda í viðtali hjá Barnahúsi ekki gefið tilefni til að ætla að hann sé þolandi mansals enda hafi það verið mat sérfræðings sem tók viðtalið við kæranda að engar vísbendingar væru uppi um kynferðislega áreitni eða ofbeldi af neinu tagi auk þess sem kærandi hafi greint frá því að vera í góðu sambandi við föðurbróður sinn. Þá hafi foreldrar kæranda staðfest tímabundna umsjá föðurbróður kæranda og óskað eftir að hann yrði sameinaður frænda sínum. Með tölvubréfi kærunefndar til talsmanns kæranda, dags. 21. desember 2023, var framangreindum upplýsingum komið á framfæri og kæranda veittur frestur til að koma á framfæri andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Í andmælum sem bárust frá talsmanni kæranda 2. janúar 2024 kemur fram að kærandi fallist á mat barnaverndarþjónustunnar um að hagsmunum kæranda sé best borgið í áframhaldandi umsjá fósturfjölskyldunnar, einkum í ljósi breytts viðhorfs hans og afstöðu foreldra hans. Það sé því kæranda fyrir bestu að vera áfram í umsjá barnaverndarþjónustunnar hjá fósturfjölskyldu.

Stjórnvöldum sem annast málefni barna á flótta ber ávallt að gæta að hagsmunum þeirra og tryggja að það sem barni sé fyrir bestu hafi forgang þegar gerðar eru ráðstafanir sem þau varða. Að mati kærunefndar er einsýnt að í þessu máli hafi þau stjórnvöld sem annars vegar annast barnaverndarþjónustu og hins vegar þau stjórnvöld sem annast framkvæmd laga um útlendinga ekki gengið samtaka til verka og hafi með óljósu verklagi tekið ákvarðanir sem hafi teflt réttarstöðu og hagsmunum kæranda í tvísýnu. Ljóst er að íslensk stjórnvöld hafi með óformlegum og órökstuddum ákvörðunum sínum aðskilið kæranda frá föðurbróður hans hér á landi og verður því að líta svo á að kærandi sé nú af þeim sökum fylgdarlaust barn í skilningi 12. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Tekur úrskurður kærunefndar mið af þeirri stöðu kæranda.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Um mál þetta fer samkvæmt 36. gr. laga um útlendinga eins og það hljóðaði fyrir gildistöku laga nr. 14/2023, sbr. 23. gr. breytingarlaganna. Í þágildandi  1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

a. umsækjandi hafi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd í öðru ríki, eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og hefur föðurbróðir kæranda framvísað ferðaskilríki útgefnu af grískum stjórnvöldum fyrir hans hönd með gildistíma til 15. mars 2026. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, m.a. með vísan til eftirfarandi landaupplýsinga og þeirrar þjónustu sem kærandi á rétt á í Grikklandi.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur kærunefnd lagt mat á þær skýrslur sem kærandi vísar til í greinargerð sinni.

  • 2022 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023);

  • Annual report 2020 (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2020);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 8. júní 2023);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, mars 2023);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

  • Freedom in the World 2023 – Greece (Freedom House, mars 2023);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;

  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/);
  • Upplýsingar af vefsíðu The Smile of the child (https://www.hamogelo.gr/gr/en/sos-1056/) og
  • World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).

Grikkland er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Grikkland verið aðili að Evrópuráðinu frá 9. ágúst 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1953. Grikkland fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 6. október 1988 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi árið 1997 og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1985 og barnasáttmálann árið 1993. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 5. apríl 1960.

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslum European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá júní 2023 og Passerell frá nóvember 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi, sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku, hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Allir eigi rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir flóttafólk þurfa einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa almannatrygginganúmer, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt skýrslu ECRE er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.

Samkvæmt skýrslum ECRE og Passerell hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði.

Á heimasíðu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna kemur fram að til þess að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi þurfi viðkomandi að fara á næstu skattstofu og leggja fram umsókn. Umsóknareyðublaðið sé á grísku og sé bæði aðgengilegt á skattstofunum sjálfum og á rafrænu formi. Með umsókn þurfi að leggja fram frumrit og afrit af dvalarleyfi ásamt sönnun á búsetu. Varðandi útgáfu almannatrygginganúmera skuli leggja fram umsókn hjá skrifstofu almannatrygginga AMKA eða í þjónustumiðstöð borgarbúa KEP. Með umsókn skuli framvísa gildu dvalarleyfisskírteini og sönnun á búsetu. Reynsla einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi af því að sækja um almannatrygginganúmer sé mismunandi. Afgreiðsla sé í sumum tilvikum fljótvirk en í öðrum tilvikum óski yfirvöld eftir frekari gögnum. Hægt sé að fá aðstoð frá frjálsum félagasamtökum við umsóknarferlið, bæði varðandi útgáfu skatt- og almannatrygginganúmera.

Í skýrslu ECRE kemur fram að samkvæmt grískum lögum sé skólaskylda fyrir börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi á grunnskólaaldri. Í skýrslu Refugee Support Aegean (RSA) kemur fram að Covid-19 faraldurinn hafi haft neikvæð áhrif á menntun flóttabarna. Mörg börn hafi ekki náð að sækja skóla í meira en ár auk þess sem það hafi verið erfiðleikum bundið að skrá sig til náms. Jafnframt eigi stór hluti flóttabarna í erfiðleikum með fjarnám vegna tungumálaerfiðleika og skorts á nauðsynlegum búnaði. Árið 2022 gaf Grikkland út aðgerðaráætlun til að bregðast við tilmælum frá European Child Guarantee sem hefur það að markmiði að sérhvert barn í Evrópu í hættu á fátækt eða félagslegri einangrun njóti grunnréttinda eins og heilbrigðisþjónustu og menntun. Gríska aðgerðaráætlunin kveður m.a. á um aðgerðir til að tryggja aðgengi barna að ungbarnamenntun og umönnun, menntun á skólastigi, heilsugæslu, heilbrigðu matarræði og fullnægjandi húsnæði. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að undir embætti umboðsmanns Grikklands starfi fimm fulltrúar sem vinni að mannréttindum, réttindum barna, velferð, heilbrigðis- og félagsmálum. Grísk lög leggi bann við refsingum gegn börnum og barnaníði. Þó hafi ofbeldi gegn börnum, sérstaklega börnum innflytjenda, flóttafólks og heimilislausra barna verið vandamál í Grikklandi. Þá hafi grísk stjórnvöld gert forvarnaráætlun um fóstur, umönnun og vistun í athvörfum fyrir börn sem hafi sætt misnotkun eða vanrækslu. Þó hafi ríkisreknar stofnanir verið undirmannaðar og skort hafi fjármagn til að veita fullnægjandi þjónustu. Þá sé til staðar sérstök neyðarlína sem opin sé allan sólarhringinn, þar sem m.a. sé hægt að tilkynna neyðartilvik og fá félagslegan og sálrænan stuðning varðandi málefni sem snerti börn og unglinga.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá hafi borið á kvörtunum óskráðra innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd um ofbeldi við brottvísunaraðgerðir (e. pushbacks) grískra yfirvalda við landamærin. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram að grísk stjórnvöld hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, lögsækja og refsa opinberum starfsmönnum sem hafi gerst sekir um mannréttindabrot eða spillingu. Hins vegar hafi frjáls félagasamtök og alþjóðastofnanir gagnrýnt stjórnvöld fyrir skort á rannsókn og öðrum aðgerðum vegna ásakana um ofbeldi og illa meðferð lögreglu við brottvísunaraðgerðir á umsækjendum um alþjóðlega vernd frá Grikklandi. Fram kemur í skýrslunni að 20. júlí 2022 hafi verið samþykkt lagabreyting sem hafi sett á fót sérstakt embætti innan ráðuneytisins um fólksflutninga og alþjóðlega vernd (e. Minstry of Migration and Asylum) til að hafa eftirlit með vernd mannréttinda við málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd. Með breytingunni hafi jafnframt verið innleitt verklag um að vísa kvörtunum til stofnunarinnar (e. National Transparency Authority, NTA) og þá hafi verið stofnuð sérstök nefnd innan ráðuneytisins sem hefur það hlutverk að tryggja að grundvallarréttindi séu virt og að samræmis sé gætt á milli innlendra laga og reglugerða og tilskipana Evrópusambandsins um landmæraeftirlit. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. málsl. þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars litið til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Þá segir að sé barn fylgdarlaust beri að taka ríkt tillit til afstöðu þess og þeirrar sérstaklega viðkvæmu stöðu sem það sé í samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun sé heimilt að taka umsókn fylgdarlauss barns til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, samrýmist það hagsmunum þess og afstöðu.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst. Í greinargerð kæranda er talið að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans þar sem að hann muni sæta aðgangshindrunum og mismunun til að tryggja framfærslu sína og önnur réttindi sem staðfest séu í þeim heimildum sem vísað hafi verið til. Þá vísar kærandi til þess að með endursendingu hans til Grikklands væri öryggi, velferð og félagslegum þroska hans stefnt í hættu sem gangi gegn meginreglunni um að ákvarðanir sem varði börn, beri að taka með hliðsjón af því sem sé barni fyrir bestu, sbr. 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga og 3. gr. barnasáttmálans, sbr. lög nr. 19/2013, sbr. einnig 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003.

Líkt og að framan greinir telur kærunefnd að líta verði svo á að kærandi sé nú fylgdarlaust barn í skilningi 12. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreinds og þeirra aðstæðna sem muni bíða kæranda í Grikklandi sem fylgdarlaust barn með alþjóðlega vernd þar í landi er það niðurstaða kærunefndar að fyrir hendi séu sérstakar ástæður í máli kæranda sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. sömu laga og 1. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, og tilvitnuð ákvæði reglugerðar um útlendinga.

Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda og leggja fyrir stofnunina að taka mál hans til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda og leggja fyrir stofnunin að taka mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

Valgerður María Sigurðardóttir

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                Sandra Hlíf Ocares


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum